Velferðarsjóður á Suðurnesjum

Markmið sjóðsins eru þau að veita neyðaraðstoð umfram það sem Hjálparstarf kirkjunnar (HK) veitir í innanlandsaðstoð sinni. Fjármagnið fer til úthlutunar á Suðurnesjum. Keflavíkurkirkja heldur utan um reikninginn (hann er á kt. kirkjunnar) en sendir reglulega fé af honum inn á reikning HK sem svo miðlar því aftur hingað á svæðið í gegnum aðstoð. Uppgjör sjóðsins er því hluti af uppgjöri fjármála Keflavíkurkirkju.

Með sjóðnum er fjármagni sem ella deilist á marga aðila safnað saman á einn stað. Fyrir vikið gefst betri yfirsýn yfir þörfina og möguleikar til fjáröflunar eru meiri en ella væri þegar kraftarnir dreifast.

Á fundi í október s.l. var stjórn sjóðsins mynduð, en hana skipa fulltrúar Keflavíkurkirkju, Verkalýðsfélaganna og Rauða krossins. Vilborg Oddsdóttir hjá HK er tengiliður við sjóðinn og hefur unnið mikið verk í hans þágu f.h. HK.

Úthlutunarreglur sjóðsins taka mið af reglum HK. Mataraðstoð er veitt þeim sem hafa þegar tekið út sína aðstoð frá HK (fjórar úthlutanir á ári), lyfjakostnaður, leikskólagjöld, skólamatur, jafnvel ferðir og flutningar einnig. Hvert tilvik er skoðað fyrir sig og rætt af fulltrúum Keflavíkurkirkju og HK. Félagasamtök og félagsmálayfirvöld hafa í auknum mæli vísað í sjóðinn. Alls hefur sjóðurinn veitt á sjöttu milljón á þessu ári en í hann hafa safnast tæpar 12 milljónir (nóvember 2009).

Allir geta lagt sjóðnum lið, bæði með beinum fjárframlögum og ekki síður ýmsu framtaki og söfnun. 

Fólk er jafnframt hvatt til þess að heimsækja þær og leggja sitt af mörkum til þessa verkefnis.
Leggja má inn framlög í sjóðinn: 1109-05-1151, kt. 680169-5789

Haustið 2009 stóð sjóðurinn fyrir tveimur viðburðum:

Lára Ómarsdóttir: Hagsýni og hamingja
Velferðarsjóður á Suðurnesjum bauð til fyrirlestrar í Kirkjulundi 20. október kl. 17:00


Hvernig er hægt að lifa af litlu án þess að tapa gleðinni? Hagsýni og hamingja er yfirskrift erindis sem Lára Ómarsdóttir mun flytja í Keflavíkurkirkju. Lára þurfti fyrir nokkrum árum að takast á við efnahagslegt hrun heimilisins, ásamt eiginmanni sínum og fimm börnum og er erindið byggt á reynslu hennar. Lára mun fjalla um hvernig hægt er að endurskoða fjárhaginn og spara þúsundir króna í hverjum mánuði en mun fremur hvernig hægt er að endurskoða hug sinn og líta framtíðina bjartari augum.

Sunnudaginn 8. nóvember kl. 12:00 var málþing í Kirkjulundi í tilefni ársafmælis sjóðsins. Yfirskriftin er: Lífsgildi, velferð og hamingja. Um það var m.a. fjallað í Víkurfréttum, sjá umfjöllun hér.

Sunnudaginn 22. nóvember afhentu Lionsmenn úr Njarðvík kr. 600 þúsund í Velferðarsjóðinn. Umfjöllun um það má nálgast hér.